Nintendo 3DS er ein flottasta leikjatölvan í dag og sú eina sem skartar þrívíddar skjá.
Til að spila í 3D þarftu sérstaka Nintendo 3DS leiki en engin gleraugu.
Nintendo 3DS er með tveimur LCD skjám. Sá efri er 3,53" og er 3D Skjár á meðan sá neðri er 3,02" og er snertiskjár.
Nintendo 3DS er með þremur myndavélum. Einni að innan og tveimur að utan sem geta tekið upp í 3D.
Þráðlaust netkort 802.11 b/g með WPA og WPA2 öryggisstöðlum. Þú getur vafrað á netinu og tölvan hefur samskipti við aðrar 3DS tölvur í grendinni.
Nintendo 3DS getur spilað eldri DS og DSi leiki fyrir utan þá sem eru með sérstöku DSi efni.
Hleðslutími er um 3,5 klukkustund og rafhlöðuending er um 3-5 klukkustundir með 3D spilun og 5-8 klukkustundir í venjulegri 2D spilun.
Þú getur sett SD kort í Nintendo 3DS til að geyma myndir og tónlist.
Nintendo 3DS er með Stereo hátölurum.