Shame
Frumsýnd: 2012-02-10
Aðahlutverk: Alex Manette, Robert Montano, Carey Mulligan, Michael Fassbender, James Badge Dale , Hannah Ware,
Söguþráður
Brandon Sullivan býr í New York og er ágætlega stæður viðskiptamaður
sem við fyrstu sýn virðist njóta lífsins og höndla það alveg ágætlega.
En Brandon glímir við veikleika sem litar líf hans verulega þegar venjubundnum
störfum sleppir. Hann er nefnilega forfallinn kynlífsfíkill og
um leið myndu margir segja að siðferði hans í þeim efnum og
samskiptum við hitt kynið sé ábótavant.
Dag einn flytur systir Brandons, Sissy, inn í íbúðina til hans og líf þeirra
beggja tekur skyndilegum stakkaskiptum þegar hún neyðir hann til að
horfast í augu við sjálfan sig og um leið til að gera upp sársaukafulla
fortíð þeirra.
Tungumál: Enska
Aldurstakmark: 16 ára
Lengd: 101 mínútur